22september

Hún var eins og kramin fluga, sem var búið að slíta af vængi og fætur ..

Fékk E-mail sem snerti mig alveg, ætla að deila því með ykkur :-)

Við erum ekki ódauðleg..

Ég mun aldrei gleyma því, hversu svalur mér fannst þú vera, þegar þú þeyttist eftir Reykjanesbrautinni á 160.kílómetra hraða á klst, á nýja bílnum þínum, sem þú fékkst daginn áður, ásamt ökuskírteininu. Það var eins og brautin hefði verið sérsniðin fyrir þig. Það breytti engu þótt myrkrið væri skollið á og brautin rennisleip, eftir rigningu dagsins. Þú varst Sjúmakker Íslands og við fylgdumst með þér af aðdáun og áttum ekki orð yfir það, hversu fimur okkur fannst þú vera á bak við stýrið. Ég sem er vanur að nota öryggisbelti, lét ég bara hanga niður með sætinu. Mér fannst algjör óþarfi að spenna það á mig, því mér fannst ég svo öruggur með þér í bíl.

Það átti við um okkur öll, sem vorum með þér í bílnum. Ljósastaurarnir þeyttumst framhjá og manni fannst eins og það væri bara einn langur ljósastaur á Reykjanesbrautinni, því þú ókst svo hratt. Ég man að stelpurnar skríktu af gleði, því þeim fannst þú svo svalur og ég fann það á mér, að þær ætluðu allar að "negla" þig í lok ferðar. Ég horfði á þig öfundsjúkur, því þú bjóst við svo mikla kvennhylli. Djöfull get ég ekki beðið eftir því að fá bílprófið, því þá skulu þær allar verða mínar.

Ég mun aldrei gleyma því þegar ég sá þig í dauðateygjunum, eftir að þú þeyttist út úr bílnum, eftir að hafa keyrt á bílinn, sem kom úr gagnstæðri átt. Eitt lítið augnablik misstir þú stjórn á bílnum og nýji bíllinn ónýtur og Reykjanesbrautin blóði drifin. Ég mun heldur aldrei gleyma stelpunni, sem sat frammí með þér. Fallega brúnhærða stelpan, sem skríkti og hló svo dátt, mun aldrei hlægja aftur. Þarna lá hún út um allt í bílnum. Hún var eins og kramin fluga, sem var búið að slíta af vængi og fætur. Ég mun aldrei gleyma stelpunum, sem sátu aftur í með mér. Þær lifðu af, en munu aldrei lifa aftur eðlilegu lífi, nema eðlilegt líf sé að liggja á sjúkrastofnun, það sem eftir er og vera grænmetishausar. Ég mun aldrei gleyma gömlu hjónunum, sem voru í bílnum, sem þú keyrðir á. Þau hefðu auðveldlega geta átt 10 - 15 góð ár í viðbót. Ég mun aldrei gleyma því, hvernig mér leið þarna aftur í. Ég gat mig hvergi hreyft og get það ekki ennþá, því ég er fastur í hjólastól og er algjörlega háður öðrum, því ég get hvorki fætt mig né klætt. Nú mun ég aldrei fá bílprófið, sem ég þráði svo heitt.... né kvennhyllina.

Ef þú heldur að þetta sé allt, þá er ég bara rétt að byrja. Hvað með móður þína og föður, sem elskuðu þig svo heitt? Hvað með systkini þín, sem dáðu þig og horfðu upp til þín? Hvað með ömmu þína og afa, sem voru svo stolt af barnabarninu sínu? Hvað með alla vini þína, sem gátu varla verið án þín?

Ertu tilbúinn að steypa öllu þessu fólki í sorg, sem er jafnvel óyfirstíganleg? Hvað með ættingja allra hinna, sem þú stefndir í hættu og myrtir? Hvernig heldur þú að það sé að vera viðstaddur jarðaför síns eigins barns? Hvernig heldur þú að það sé að koma í heimsókn á sjúkrahúsið, þar sem barnið þitt liggur, með næringu í æð og í dái, og á aldrei möguleika aftur á eðlilegu lífi? Hvernig heldur þú að það sé að þurfa að fæða, klæða og skeina barninu sínu, langt fram á fullorðinsaldur?

Hefði ekki bara verið betra að keyra á löglegum hraða eða var "kúlið" alveg að drepa þig? Það gerði það reyndar á endanum.

Höf. Garðar Örn Hinriksson

Kv. Sigrún Inga :-)

22. september 2006 klukkan 15:34
Sigrún Inga
1 athugasemd
12september

I was borned to late, in to a world that doesn't care ..

Hvað er með allar þessar slúður síður sem að eru farnar að fæðast í óvenju miklum mæli þessa dagana? :-/ verð að viðurkenna að þetta er farið að fara oggupínulítið í mínar fínu ;-)

En lítið við því að gera ! Skólinn er byrjaður á fullu og ég hef valla undan að læra ;-) er reyndar búin að vera droppa inn hér og þar og hanga allan daginn .. en huxa mikið um það að fara að vera dugleg að læra ;-)
Busaballið í FS var á Fimmtudaginn, það var ágætt svo sem, ætla ekkert að fara nánar út í það .. busaballið í Verzló er næsta fimmtudag og skal ég koma með nána skýrslu frá því frekar ! Það verður svo hryllilega gaman og frá miklu að segja hhihi ;-) Við í 5.-H  kunnum að skemmta okkur - 5.-H EKKERT MÁL - að vísu þá er ekki hægt að toppa nemó partýið sem ég hélt í fyrra, en vonandi verður partýið heima hjá Nönnu mjög nálægt því ;-) En eins og NEMÓ partýið var skemmtilegt í fyrra þá var leiðilegt að þrífa daginn eftir, hélt ég væri komin á ruslahaugana þegar ég vaknaði daginn eftir, það var svo mikið drasl :-) Gaman að heyra í nönnu á föstudaginn og vita hvernig gekk hjá henni að þrífa ;-) Múhahha ..

Ég komst að því áðan að Steve Irwin væri dáinn ! Mér finnst eiginlega ótrúlegt að hann sé ekki löngu dáinn, en það eru alltaf örlögin sem ráða í þeim málum. ég á svo sannarlega eftir að sakna peyjans .. Maður sem leyfir risa köngulóm að skríða á sér eins og þær séu dætur hans, ekki hægt annað en að dást af svoleiðis fólki ;-) Kannski að maður fari og drepi eina til tvær gaddaskötur til að hefna hans og skeri halann af þeim !? Grunur leikur allava á að aðrir aðdáendur hans séu búnir að vera að stunda það ;-) Hehe .. afhverju kaupir fólk ekki frekar blóm og setur á gröfina hjá manninum ? Efast um það að hann vilji láta hefna dauða síns svona :-) Allava myndi ég ekkert kæra mig um þetta !!

Jæja, ætla að fara að huxa um það að læra í góða veðrinu ;-)



12. september 2006 klukkan 21:23
Sigrún Inga
Engin athugasemd
12ágúst

JÆJA

Það er sálarball um helgina .. og ætlast ég til þess að hitta allt þetta skemmtilega fólk sem allir eru að tala um . . hinir leiðilegu meiga halda sig heima :-)
Markmiðið er að gera þetta að skemmtilegasta balli ársins, er það ekki ? ;-) Sálin stendur náttúrulega alltaf fyrir sínu það er bara spurning um fólkið, hvort að það eigi eftir að standa sig ! Keflvíkingar eru neflilega þekktir fyrir það að eyðileggja svona böll og skemmtanir með slagsmálum og rugli !!
Hver hefur ekki lent í því að kynnast nýju fólki frá öðrum bæjarfélögum og svo þegar fólkið kemst að því að maður kemur frá keflavík þá hleypur það í burtu !! Ég mæli allavegana ekki með því að þið gangið um í keflavíkur treyju á Akranesi, þið gætuð lent í fangelsi fyrir það ;-)

Hehe, fyrir þá sem eru ekki búnir að sjá DV í dag, þá er þar frétt um það að það er til FAN-síða um hann Óla Geir!! Hihihihi .. það er ekki í lagi með suma íslendinga, þegar þú ert farin að búa til fan síðu um óla geir, og photo shoppa myndir af ykkur saman og svona, þá er eitthvað mikið að! Það er nokkuð augljóst!  Ef dóttir mín ætti FAN-síðu um Óla Geir þá væri ég ekki lengi að skerast inn í málið, loka síðunni og senda stelpuna til sálfræðings, ef ekki bara geðlæknis :-) .. En hver veit, kannski er þessi unga stelpa bara svona yfir sig ástfangin ?  Ekki hægt að setja mikið út á það, hann er fínn strákur :-)
En fyrir þá sem hafa áhuga á að skoða þessa umtöluðu síða þá er slóðin www.folk.is/oli-geir ... hahaha :-D

.. svo er það aðalfrétt dagsins :

Api beit Paris Hilton

Hótelerfinginn, samkvæmisljónið og fyrirsætan Paris Hilton var bitin í handlegginn af einu gæludýra sinna, apanum Baby Luv, sem er af tegundinni kinkajou. Hilton keypti apann í fyrra og var að leika við hann þegar hann stökk á handlegg hennar og beit í hann.

Talsmaður Hilton, Elliot Mintz, staðfestir að þetta hafi gerst og að hann hafi farið með Hilton á sjúkrahús. Sárið reyndist þó grunnt og fékk Hilton stífkrampasprautu. Heilsa hennar mun vera góð.




hehe, góða helgi ;-)

Kv. Sigrún Inga :-)
12. ágúst 2006 klukkan 02:53
Sigrún Inga
1 athugasemd
10ágúst

MÉR FINNST RIGNINGIN GÓÐ ;-)

Jæja, á ég að fara að tjá mig ? :-)

Eins og þeir sem hafa einhvern áhuga á að vita hvað ég er að eyða mínum dýrmæta tíma í hafa tekið eftir, þá hef ég ekki verið dugleg að blogga upp á síðkastið ! En hvað með það?
Ég var að koma frá eyjum í gær .. fór á þjóðhátíð í eyjum .. og það var alveg hrikalega gaman :-D Fer 110 % á næstu þjóðhátið ;-) ég var náttúrulega í skemmtilegu ástandi mest allan tímann ;-)
Og viti menn, það firsta sem að ég ákvað að gera þegar ég kom heim var að kaupa mér miða til flórída ;-) ég og mamma förum saman 10. nóvember og verðum yfir langa helgi í verslunarferð :-D Ég á einmitt afmæli 11. nóvember, þannig að þú veist hvað þú átt að gefa mér í afmælisgjöf.

Hef ekki meira að segja í bili.

SPORÐDREKI SPORÐDREKI
Sporðdrekar eru oftast grannir, með hvöss og djúp augu og þungar augabrýr. Þeir eru yfirleitt afar kynþokkafullir og klæða sig líka þannig, gjarnan í flegnar blússur eða svört leðurföt. Sporðdreki er vatnsmerki og tengist djúpum tilfinningum, yfirleitt þeim sem snerta kynlíf og sjálfsbjargarhvöt. Það er oft sagt, að Sporðdrekinn sé misskildasta merki dýrahringsins, og flestum þykir fólk fætt í því merki leyndardómsfullt og spennandi. Undir heilsteyptu ytra borði Sporðdrekans leynist oft gríðarleg tilfinningaólga, afbrýðisemi og ástríða, og fólk í þessu merki reynir af fremsta megni að skapa sér tilfinningalegt öryggi í heimi sem því finnst fjandsamlegur. Sporðdrekar hafa mjög næma eðlisávísun og fæstir geta farið á bak við þá, og þeir hafa oftast mikinn áhuga á yfirskilvitlegum efnum.Þeir eru hefnigjarnir en einbeittir og þolgóðir og gefast ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Sporðdrekar væru framúrskarandi byltingarmenn, einkum af öfgakenndara taginu, en þeir kasta sér reyndar af ástríðu út í hverja þá vinnu sem vekur áhuga þeirra og kitlar ímyndunaraflið. Í íþróttum velja þeir sér iðulega eitthvað sem hætta fylgir (eða gæti fylgt), t.d. skylmingar, karate og teygjuhopp, en þeir hafa líka yndi af dansi og tónlist. Til að öðlast lífshamingju, þarf Sporðdrekinn að reyna að sigrast á innri ótta sínum og sálarkvölum, sem þeir eiga erfiðara með að leiða hjá sér en aðrir.

hehe .. það er alltaf eitthvað um kynlíf í stjörnuspánum mínum, skil ekkert í því ;-)

Kv. Sigrún Inga
10. ágúst 2006 klukkan 00:58
Sigrún Inga
Engin athugasemd
15júlí

UNO CERVECA, GRACIA

Hola senorita ;)

Jaeja, nuna er eg komin a bene i 30 + hita :D
Sit i einhverju tivolii i tolvunni, hihi ;) Buid ad vera svaka fjor, Ingo brodir atti afmaeli a midvikudaginn og hjalli a afmaeli i dag !!
Er bara buin ad vera ad sleikja solina og aetla mer ad halda tvi afram ;) vid biggi erum komin med sma far ;) Greta aftur a moti er eins og spanverji, hun er ordin svo brun :/ planid er ad loka hana inni naestu daga til ad na henni !! ;) Jaeja, hef fra fau ad segja af tvi ad vid erum svo ny komin, blogga meira a naestu dogum :)

Bid aegilega vel ad heilsa ollum heima, serstaklega anitu, vill einhver vinsamlegast bjarga henni ef hun er ad drukkna i pollonum heima ;)

Kv. Sigrun Inga og Biggi
15. júlí 2006 klukkan 01:51
Sigrún Inga
Engin athugasemd
18júní

Á morgunn segir sá lati :-)

Sunnudagur í leti !!
Ég svaf í 3 tíma í nótt, þannig að ég ákvað að taka daginn á náttfötunum fyrir framan sjónvarpið :-) Og jú, ég get ekki kvartað, það er svo æðislegt að letipúkast svona ;-)
Ég fór  i svakalega skemmtilegt innflutningspartý í gær hjá Gúðrúnu, Palla & Anítu ;-) Skítamórall kom og tók nokkur lög í partýinu og svona .. ekki amalegt :-D, en Guðrún átti afmæli fyrir stuttu og Palli ákvað að koma henni á óvart með því að fá skítamóral til að koma og syngja afmælissöngin fyrir hana, örugglega afmælisgjöf sem gleymist seint :-D

Ég er búin að vera hrikalega löt að blogga upp á síðkastið, og er það enn !

Þannig að ég ætla bara að koma með smá slúður :

Hæna í molde í noregi verpti nýlega eggi sem var tvisvar sinnum stærra en venjulegt hænuegg. Vó eggið 122 grömm, en venjulegt hænuegg vegur á bilinu 50-60 grömm. Það varð hænunnar síðasta að verpa þessu eggi.



Adios,

Kv. Sigrún Inga ;-)

18. júní 2006 klukkan 22:56
Sigrún Inga
2 athugasemdir
06júní

Jæja elskurnar mínar, þá er Biggi loksins orðin tvítugur ;-) Og til lukku með það!
Hann hélt upp á afmælið sitt á laugardaginn, og heppnaðist það bara anskoti vel :-) Það var alveg hörku fjör og Biggi fékk mjög frumlegar afmælisgjafir ;-) þar á meðal var uppblásin belja og gervi pjása!! Ég veit ekki hvort að þetta séu einhver skilaboð til mín, eða hvort að ég hafi eitthvað hvartað óvenju mikið uppá síðkastið yfir bakverkjum, enn .. þetta var alveg rosalega gaman :-D Eini gallinn var sá að allir skemmtistaðirnir í keflavík lokuðu klukkan 3 :-/



Þetta er hún Daisy, nýja vinkona hans Bigga ;-) að sjálfsögðu fékk hún mestalla athyglina allt kvöldið :-D .. Reynir lagði sig líka allann fram í að reyna að stela greyjið beljunni af Bigga, því hann ætlaði sko EKKI einn heim þetta kvöldið ;-) Aníta, Sunna og Bjössi gáfu Bigga þessa elsku, takk æðislega elskurnar mínar ;-)

Nafnarnir Biggi Júlli & Biggi blönduðu saman þess mjög svo girnilegu bollu, sem veitti mjög mikla lukku .. það var ekki einu sinni 1 dropi eftir í lok kvöldsins :-)

Sunna Dís, sem á að eiga í júlí, akkúrat á meðan ég verð úti :-/ lét sig að sjálfsögðu ekki vanta :-D Það er örugglega ekki auðvelt að vera svona kasólétt og mæta í partý ;-) Hún er soddan hörkutól :-D og með sætustu bumbu í heimi ;-)

Ég, Gréta & Aníta skemmtum okkur konunglega og dönsuðum eins og við fengjum borgað fyrir það . . eða nei, hljómar ekki nógu vel kannski!! nei, við vorum ekki að strippa, bara dansa :-)

.. og svo má auðvitað ekki gleyma ÖLLU fræga fólkinu sem mætti í veisluna, en Guðrún Lísa, söngkonan í ísafold .. kom að sjálfsögðu !! ;-)

Jæja, núna er ég búin að koma með svona smá, leiðinlegt fyrir þá sem létu ekki sjá sig í afmælinu .. en þetta verður að nægja ;-)

Sæl að sinni ..

Kv. Sigrún Inga !
06. júní 2006 klukkan 16:55
Sigrún Inga
3 athugasemdir
30maí

Hverjum hefði dottið í hug að litla sæta krúttið væri svona mikill prakkari ? ;-)

Ég er ekki búin að gera neitt sérstakt upp á síðkastið, þess vegna veit ég ekki hvernig mér datt það í hug að fara að blogga ;-) Aníwei, ef að það væri alltaf eitthvað sérstakt að gerast hjá mér þá þirfti ég annað hvort að vera OPRAH eða PARIS HILTON :-) En þar sem að ég er Sigrún Inga ..

Um helgina var ekkert djammað eða gert neitt að hætti villtra unglinga heldur fór ég á laugardaginn í vinnuna, svo var planið að fara upp á kosningaskrifstofu, hjá sjálfstæðisflokknum að sjálfsögðu, að hjálpa ömmu.. En þar sem að það voru svo margir æstir í að hjálpa til, þá var ekkert verkefni eftir handa mér:-) Fúlt !! hihi  Þannig að ég ákvað að fara með 2 litlu frænkur mínar .. Kötlu og Steinu .. Mestu krúsídúllur í heimi ;-) .. í bíó í smáralindinni. Svo kippti ég líka litla frænda mínum með :-) Það var alveg rosalega gaman, fékk smá nammi í hárið og svona, það fylgir alltaf! Síðan fór ég með þau heim og við pöntuðum okkur pizzu og franskar .. Þau voru svo ánægð með það að stóra frænka þeirra hafi gert þetta allt fyrir þau að ég fór ekkert smá hamingjusöm að sofa klukkan c.a. 11 á laugardagskvöldið ;-)


Ég er að fara til Benidorm eftir 44 daga :-) Hún Telma, sem er að fara líka, kemur reglulega upp í vinnu og upplýsir hvað það eru margir dagar þangað til við förum ;-) hihih hún byrjaði að telja niður örugglega fyrir 2 mánuðum eða svo :-D En já, tilhvers er ég að monta mig :-/ Eru ekki allir að fara til útlanda í sumar ?! Allava MJÖG margir!! whats up with that, er það af því að iceland express er farið að rúnta til spánar eða af því að íslendingar eru allir orðnir kaupóðir ? :-) .. ég veit ekki með ykkur hin en ég er með kaupæði :-)

Svona í lokin vil ég koma því á framfæri að Biggi verður tvítugur á föstudaginn :-D Og hann ætlar að halda upp á afmælið á Laugardagin, allir sem hafa áhuga á því að koma og þekkja persónulega mig eða Bigga .. ERU HJARTANLEGA VELKOMNIR :-)
Hann verður jú bara tvítugur einu sinni :-) og vona ég að sem flestir láti sjá sig .. Ég meina, hverju hefuru að tapa ? ;-)


.. Og líka, prufaðu þennan leik hihihi, soldið fyndinn ;-) http://leikjanet.is/?gluggi=leikir_spila&leikur=653


Til huggunar:


Kv. Sigrún Inga :-)
30. maí 2006 klukkan 02:41
Sigrún Inga
2 athugasemdir
25maí

TIL ALLRA ÞEIRRA SEM ERU AÐ HÆTTA Í SAMBANDI ÞESSA DAGANA .. hljóta að vera margir ;-)

The Brighter Sides of Breaking Up By Ze
 
Dieting is easier when you don’t have an appetite.
Even though you’ve become massively in debt from gifts you bought your ex, at least your newfound addiction to cigarettes has left you with bad breath.
Since on average you fall in love every 9 years, you’ll only be 40 when it happens again.
You get to do a huge spring-cleaning regardless of the season since half your stuff is now in the “memorabilia” category.
You get to experience what its like to be a depressed, tormented artist… just without the motivation or talent.
Crying at movies no longer makes you feel stupid, since it’s the only place where its okay to do it in public.
You can appreciate the nuanced subtlety in the lyrics to Richard Marx’s “I’ll be waiting right here for you”.
You finally get to learn how to delete a number in your cell phone address book.
The fact that your cell phone now has 148 empty slots, gives you a new urgency in reconnecting with lost friends.
You get to experience a deep warm connection when the guy at Starbucks says "Have a nice day!" and smiles.
You can do empirical studies on whether alcohol is actually a depressant.
You find yourself answering the question “How are you today?” honestly and at great length.
You get to finally reconnect with your pet.
You begin to wonder whether pets think in sentences and whether the words” i love you “ ever crossed their minds.
You get to look forward to dates where you catch someone else up on how many siblings you have as well as all the other mundane facts of your life.
You get to hone your marketing skills by attempting to sell “beauty on the inside” in noisy bars.
You can try to convince your parents that they owe you money considering how much they saved since you aren’t going to have a wedding.
Boggle is easier to win when you play by yourself.
You can remember old times by revisiting the single-serving coffee maker your mom bought you during college.
You get to rely on that killer instinct you used to have when choosing an outfit for a night out.

Watching your friends children have temper tantrums no longer has the same ominous implications and returns to just being plain funny.

 

P.S. Don't worry...it'll all be okay...I promise.


Kv. Sigrún Inga :-)

25. maí 2006 klukkan 23:21
Sigrún Inga
2 athugasemdir
24maí

People kill & people dyin'

Hola senorita, ég verð að æfa mig fyrir benedorm .. það er bara 1 og hálfur mánuður þangað til að ég fer út :-D Jibbý

Úr monti yfir í annað ;-) .. Ég er að horfa á Live8 tónleika frá 2005 og rétt í þessu gekk söngvarinn úr R.E.M inn soldið skemmtilega málaður :



Enginn smá gæji, ég veit ekki alveg hvað þessi málning þýðir, en mér brá aðeins þegar ég sá hann ;-) Hann er eins og geimvera, hihihih ;-)
Þessir tónleikar eru algjör æði, pabbi keypti DVD diska með 9 Live8 tónleikum .. þá vitiði hvað ég eiði frítímanum mínum í á næstunni ;-) Robbie Williams var áðan, sjúklega flottur eins og vanalega .. heitasti gæji á sínum aldri að mínu mati .. þeir sem hafa ekki séð hann á tónleikum vita ekki hvað ég er að meina, en hann er svo mikill sjarmör að ég kikna í hnjánum þegar ég er að horfa á tónleika með honum ;-) Langar svo SJÚKLEGA mikið að fara á tónleika með honum. Hann er bara eitthvað svo .. Flottur á sviði, get ekki lýst þessu ;-) Svo eru fleiri skemmtilegir söngvarar og hljómsveitir á þessum diskum t.d. U2, coldplay, black eyed peas, muse, travis, green day, desiny's child, madonna, will smith, snow patrol .. og ég er rétt að byrja .. En live8 er í þágu góðgerðamála fyrir börn sem eiga erfitt í afríku.

Will smith var að segja að í heiminum deyji barn á þriggja sekúntna fresti, það er vægast sagt hræðilegt !!!


BUT, ég er að fara að sækja einkanirnar mínar á morgunn :-0 Það verður eitthvað .. hehe sumarskóli ef ég fell í einhverju, ég ætla að byðja bænirnar mínar í kvöld ;-)

Ég fór á djammið um helgina, það var alveg ágætt .. en ekkert svakalega gaman :-/ ætla að fara aftur út um helgina .. til að bæta fyrir síðasta laugardag ;-) . .góð afsökun, er þaggi ?! ;-)
Ummm .. Sjúklega flottur ;-)

Kv. Sigrún Inga williams ;-)
24. maí 2006 klukkan 00:45
Sigrún Inga
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Könnun

Hvernig eru augun mín á litin?

Auglýsing